ÍSAFJÖRÐUR

66° 4' 14" N 23° 7' 30" V

BRYGGJUSAUNA

Bryggjusauna

Bryggjan hefur alltaf verið mótsstaður fólks og ferða. Hér er unnið, beðið og horft út yfir hafið. Bryggjusauna stendur á þessum grunni og bætir við nýrri ástæðu til að staldra við – stað fyrir kyrrð þar sem oft er stöðug hreyfing.

Saunan stendur við Pollinn í hjarta Ísafjarðar. Húsið er hannað af finnska arkitektinum Tuomas Toivonen og sækir innblástur í eldri hús bæjarins. Úr saununni blasir við útsýni yfir Pollinn, fjöllin og bæinn.

Bryggjusauna varð til út frá einfaldri hugmynd: að skapa stað þar sem bæjarbúar og gestir geta hægt á sér, notið augnabliksins og endurnýjað orkuna með samspili hita og kulda.

Saunan rúmar allt að 10 gesti í senn og er búin hefðbundnum finnskum rafmagnsofni. Gestum stendur til boða búningsaðstaða og sturta. Við bókun færð þú aðgangskóða sem veitir aðgang að saununni á bókuðum tíma. Allt sem þú þarft að taka með þér eru sundföt og handklæði. Hægt að bóka stakt sæti í opnum tíma eða einkasaunu fyrir hópa sem vilja hafa saununa út af fyrir sig.

Fylgstu með okkur

BRYGGJA

Bryggja er ilmverk sem skapað var fyrir Bryggjusaunu á Ísafirði.  

Innblásið af sögu hafnarinnar, landslaginu og mannlífinu býður

það gestum að kynnast anda staðarins í gegnum lyktarskynið.

Hönnuður ilmsins er Sonja Bent, íslenskur ilmlistamaður sem vinnur með ilm sem listrænan miðil.

Í verkum sínum túlkar hún staði í gegnum ilm og skapar skynrænar upplifanir sem bjóða gestum að upplifa landslag, náttúru og menningu með nýjum hætti.

Í verkum hennar verður ilmur að leið til að miðla því sem orð og myndir ná ekki alltaf að fanga. Hvert verk sprettur af náinni athugun á staðnum og byggir á söfnun, eimingu og rannsóknum á ilmefnum sem verða hluti af listrænu ferli hennar.

Í verkum Sonju mætast list, handverk og rannsóknir í leit að nýjum leiðum til að upplifa og skilja staði í gegnum ilm.